Bæjarstjórn Akureyrar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 20. febrúar.
Á dagskrá fundarins er meðal annars umfjöllun um deiliskipulag Torfunesbryggju, aðalskipulag Akureyrar, endurskoðun á reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti og samgöngusamningar. Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsalnum í Geislagötu 9, 4. hæð og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 7. febrúar kl. 14.00 á sjónvarpsstöðinni N4. Upptökur frá bæjarstjórnarfundum má nálgast hér.