Menningarhúsið Hof
Mynd: Auðunn Níelsson
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 19. október. Á dagskránni eru meðal annars breytingar í nefndum, gjaldskrá Hlíðarfjalls og umræður um skýrslu starfshóps um skilgreiningu á svæðisbundnu hlutverki Akureyrar.
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 20. október kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.
Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.