Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 19. janúar

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 19. janúar. Á dagskránni er meðal annars samþykkt fyrir ungmennaráð, aðalskipulag á tjaldsvæðisreit og Skarðshlíð 20 og deiliskipulag vegna Austursíðu.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Að þessu sinni verður um fjarfund að ræða vegna samkomutakmarkana. Eftir sem áður verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi og hægt að nálgast upptöku á vefsíðu bæjarins en upptökur eru aðgengilegar daginn eftir fund. Sjónvarpað er frá fundinum miðvikudaginn 20. janúar kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.

Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan