Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 17. desember

Menningarhúsið Hof
Menningarhúsið Hof

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 17. desember. Á dagskránni er meðal annars gjaldskrár Akureyrarbæjar 2020, álagning útsvars og fasteignagjalda 2020, og fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 18. desember kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan