Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 15. október

Ráðhús
Ráðhús

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 15. október. Á dagskránni er meðal annars aðalskipulagsbreyting fyrir Krossaneshaga, aðalskipulagsbreyting vegna lóðar við Glerárskóla, og tillögur að deiliskipulagsbreytingum við lóð Glerárskóla, Glerárgil og í Hlíðarhverfi auk tillögu að breytingu að deiliskipulagi miðbæjar vegna Skipagötu 12.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsinu, 1. hæð og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 16. október kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4. Upptökur frá bæjarstjórnarfundum má nálgast hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan