Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 1. október

Hof - mynd: Auðunn Níelsson
Hof - mynd: Auðunn Níelsson

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 1. október. Á dagskránni er meðal annars tillaga að lýsingu aðalskipulagsbreytingar vegna breytingar á stefnu varðandi rekstrarleyfisskilda gististarfsemi á íbúðarsvæðum og skipulagslýsing vegna breytingar á rammaskipulagi Oddeyrar neðan Hjalteyrargötu.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 2. október kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan