Fundur í bæjarstjórn 6. september

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 6. september kl. 16. Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn.

Á dagskránni er m.a. tillaga að aðalskipulagsbreytingu vegna Dalvíkurlínu 2, umræða um íbúasamráð á vegum Akureyrarbæjar og umræða um svæðisbundið hlutverk Akureyrar.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur hér á heimasíðunni að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan