Fundur í bæjarstjórn 4. október

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 4. október nk. kl. 16. 

Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn.

Á dagskránni er m.a. tillaga að deiliskipulagi fyrir Tryggvabraut, umræða um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og umræða um framtíðarsýn fyrir almenningssamgöngur á Akureyri. 

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur hér á heimasíðunni að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan