Fundur í bæjarstjórn 26. apríl

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 26. apríl kl. 16. Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn.

Á dagskránni er meðal annars síðari umræða um ársreikning Akureyrarbæjar fyrir árið 2021, endurskoðun á reglum um símenntun starfsfólks og umræða um lausagöngu katta. 

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni. 

Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum. Athugið að ekki verður streymt frá fundinum að þessu sinni, en upptaka verður gerð aðgengileg að honum loknum.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan