Fundurinn verður í Hofi - mynd: Auðunn Níelsson
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 19. maí. Á dagskránni er meðal annars: viðaukar við fjárhagsáætlun, endurskoðun menntastefnu, umræða um fiskeldi í Eyjafirði og starfsáætlun velferðarráðs,
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 20. maí kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.
Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.