Fundur í bæjarstjórn 18. júní

Hof - mynd: Auðunn Níelsson
Hof - mynd: Auðunn Níelsson

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 18. júní. Á dagskránni er meðal annars: kosning forseta og skrifara bæjarstjórnar til eins árs, kosning bæjarráðs til eins árs, aðalskipulag vegna lóðar við Glerárskóla, umsókn um stækkun lóðar við Rangárvelli 4 og kerfisáætlun Landsnets 2019-2028.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 19. júní kl. 14.00, á sjónvarpsstöðinni N4. Upptökur frá bæjarstjórnarfundum má nálgast hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan