Menningarhúsið Hof. Mynd: María Helena Tryggvadóttir
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 18. febrúar. Á dagskránni er meðal annars: endurskoðun gatnagerðargjalda, breyting á deiliskipulagi Sandgerðisbótar, endurskoðun á reglum um skammtímavistun og starfsáætlun og stefnuumræða nefnda 2020.
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 19. febrúar kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.