Fundur í bæjarstjórn 1. nóvember

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 1. nóvember nk. kl. 16.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, og er öllum opinn.

Á dagskránni er meðal annars fyrri umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2023-2026, umræða um lýðheilsuátak á vegum Akureyrarbæjar og aðalskipulagsbreyting vegna Dalvíkurlínu 2. 

Hér er hægt að skoða dagskrá fundarins.

Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur hér á heimasíðunni að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan