Fundur bæjarstjóra á norðurslóðum

Frá fundi bæjarstjóra á norðurslóðum sem haldinn var í Tromsö. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjór…
Frá fundi bæjarstjóra á norðurslóðum sem haldinn var í Tromsö. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri lengst til hægri.

Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, sótti í síðustu viku fund bæjarstjóra á norðurslóðum sem haldinn var í Tromsö í Noregi en norðurslóðir eru skilgreindar sem ákveðið svæði í kringum Norðurheimskautið. Fundur bæjarstjóranna var hluti af stórri alþjóðlegri ráðstefnu Arctic Frontiers þar sem fræðimenn og fólk úr stjórnsýslu og viðskiptum fjallar um sjálfbæra þróun og tækifæri til hagvaxtar í sátt við umhverfið á norðurslóðum.

Bæjarstjórarnir ræddu meðal annars þróun upplýsingatækni á sviði heilbrigðis-, umhverfis- og orkumála, nýsköpun fyrir tilstuðlan samstarfs fræðasamfélagsins, stjórnsýslunnar og viðskiptalífsins, borgarskipulag og þróun á sviði sjálfbærrar orkunýtingar.

Eiríkur Björn segir að fundur bæjarstjóranna hafi verið upplýsandi og gagnlegur í alla staði. „Það er mjög mikilvægt að Akureyri taki þátt í samstarfi þjóða og sveitarfélaga á norðurslóðum. Öll eigum við mikilla hagsmuna að gæta hvað varðar nýtingu auðlindanna í sátt við umhverfið. Akureyri hefur verið í fararbroddi á Íslandi í nýtingu og framleiðslu á umhverfisvænu eldsneyti og vistvænum orkugjöfum, endurvinnslu og sjálfbærni. Önnur sveitarfélög í heiminum hafa mikinn áhuga á því sem við erum að gera á þessu sviði og við stefnum ótrauð að því að gera bæinn okkar kolefnishlutlausan," segir Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri.

Heimasíða Arctic Frontiers.

Frá fundi bæjarstjóra á norðurslóðum sem haldinn var í Tromsö. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri lengst til hægri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan