Frítt í sund og á skíði í vetrarfríi

Sundlaug Akureyrar
Sundlaug Akureyrar

Akureyrarbær býður í sund og á skíði í vetrarfríinu. Miðvikudaginn 26. febrúar, fimmtudaginn 27. febrúar og föstudaginn 28. febrúar geta grunn- og framhaldsskólanemar á Akureyri farið í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli og í sundlaugar Akureyrarbæjar án endurgjalds. 

Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar VMA og MA framvísa nemendaskírteinum. 

Athugið að krakkarnir þurfa að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.000 krónur í skíðalyfturnar. Kortin fást í afgreiðslu Hlíðarfjalls. 

Góða skemmtun!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan