Frístundastyrkurinn hefur fjórfaldast á sex árum

Á Stefnumóti í Boganum. Mynd: Þórir Tryggvason
Á Stefnumóti í Boganum. Mynd: Þórir Tryggvason

Ákveðið var við gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar að hækka frístundastyrk til niðurgreiðslu gjalda vegna íþrótta- og tómstundastarfs. Styrkurinn fyrir árið 2020 nemur 40 þúsund krónum á hvern iðkanda og gildir fyrir börn og ungmenni fædd 2003 til og með 2014.

Frá árinu 2006 hefur Akureyrarbær veitt styrk til allra barna á aldrinum 6-17 ára til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum. Frístundastyrkurinn hefur verið hækkaður í áföngum og hefur upphæðin fjórfaldast frá árinu 2014, líkt og sjá má á þessu yfirliti:

Ár Upphæð frístundastyrks
2006-2014 10.000
2015 12.000
2016 16.000
2017 20.000
2018 30.000
2019 35.000
2020 40.000

 

Nýtingin hefur aukist samhliða hækkandi upphæð, en á allra síðustu árum hefur einnig verið lögð áhersla á að fjölga nýtingarmöguleikum. Styrkurinn einskorðast ekki við skipulagðar íþróttaæfingar eða námskeið myndlistar- eða tónlistarskóla, heldur má einnig nota hann til að kaupa aðgang að líkamsræktarstöðvum, vetrarkort í Hlíðarfjalli eða árskort í Sundlaug Akureyrar, svo eitthvað sé nefnt. 

Í þjónustugátt Akureyrarbæjar er hægt að sækja um frístundastyrk og skoða ráðstöfun þessa árs og fyrri ára. Hér eru einnig ýmsar upplýsingar um frístundastyrkinn. 

Athugið að þetta eru ekki beingreiðslur til foreldra eða forráðamanna, heldur er einungis hægt að ráðstafa tiltekinni upphæð í nafni barns til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum. Ónotaðir frístundastyrkir flytjast ekki milli ára. 

Akureyri er heilsueflandi samfélag

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan