- Þjónusta
- Menntun
- Samgöngur og slökkvilið
- Umhverfismál
- Skipulag og byggingarmál
- Velferð og fjölskyldan
- Stjórnkerfi
- Bæjarstjórn
- Stjórnsýsla
- Akureyri
- Útboð
- Fjármál og tölfræði
- Fyrir fjölmiðla
- Sveitarstjórnarkosningar 2022
- Mannlíf
- Þjónustugátt
Franska kvikmyndahátíðin á Akureyri hefst á morgun og verða fjórar bíómyndir sýndar á nokkrum vel völdum stöðum frá 8.-19. febrúar.
Enginn aðgangseyrir er á sýningar hátíðarinnar en sætafjöldi er takmarkaður í Sambíóunum og því er nauðsynlegt að fólk skrái sig fyrir miðum á sýningarnar þar.
Dagskráin er þessi:
8. febrúar kl. 17 - Sambíóin Akureyri
Grand Marin / Sjókonan
Skráning HÉR
Aðalhlutverk: Dinara Drukarova, Sam Louwyck, Björn Hlynur Haraldsson.
Leikstjóri: Dinara Drukarova.
Stikla HÉR
Viðburður á samfélagsmiðlum HÉR
Lengd: 84 mín.
Tungumál: Franska og enska með íslenskum texta.
Myndin gerist við Íslandsstrendur og er framleidd af Benedikt Erlingssyni og í aukahlutverkum eru meðal annars Björn Hlynur Haraldsson og Hjörtur Jóhann Jóhannsson. Hún fjallar um Lili sem hefur yfirgefið allt sem hún þekkir til að elta draum sinn um að ferðast um heiminn og veiða í Norðursjónum. Myndin var að miklu leyti tekin upp á Íslandi.
14. febrúar kl. 16.30 - Amtsbókasafnið á Akureyri
Calamity
Engin skráning, bara mæta
Aðalhlutverk: Salomé Boulven, Alexandra Lamy, Alexis Tomassian.
Leikstjórn: Rémi Chayé
Stikla HÉR
Viðburður á samfélagsmiðlum HÉR
Lengd: 85 mín.
Tungumál: Franska með íslenskum texta.
15. febrúar kl. 17 - Sambíóin Akureyri
Cuopez! / Final Cut!
Skráning HÉR
Aðalhlutverk: Romain Duris, Bérénice Bejo, Grégory Gadebois.
Leikstjóri: Michel Hazanavicius.
Stikla HÉR
Viðburður á samfélagsmiðlum HÉR
Lengd: 110 mín.
Tungumál: Franska og japanska með íslenskum texta.
Stórkostleg gamanmynd þar sem hópur kvikmyndagerðarmanna lendir í kröppum dansi í tökum á lítilli uppvakningamynd, þar sem hlutinir flækjast þegar alvöru uppvakningar fara trufla framleiðsluna! Myndin, sem var opnunarmynd Cannes kvikmyndahátíðarinnar 2022 er endurgerð á hinni stórkostlegu One Cut of the Dead.
19. febrúar kl. 15 - Listasafnið á Akureyri
Les Invisibles / Invisibles
Engin skráning, bara mæta
Aðalhlutverk: Yann, Pierre, Bernard Romieu.
Leikstjóri: Sébastien Lifshitz.
Stikla HÉR
Viðburður á samfélagsmiðlum HÉR
Lengd: 115 mín.
Tungumál: Franska með enskum texta.
Ellefu karlar og konur sem ólust upp í Frakklandi á millistríðsárunum og eiga ekkert sameiginlegt annað en að vera samkynhneigð, segja frá reynslu sinni af forpokuðu samfélagi sem í rauninni hafnaði tilvist þeirra. Reynsla fólksins afhjúpar þau ljón sem urðu í veginum þegar það reyndi að lifa sínu eðlilega lífi. Sébastien Lifshitz, leikstjóri myndanna PRESQUE RIEN og WILD SIDE, opnar okkur sýn á líf samkynhneigðra á árum áður. Ástúðleg og hreinskilin frásögn.
Vínglas í boði fyrir gesti í boði sendiráði Frakklands á Íslandi.
Franska kvikmyndahátíðin er haldin í samstarfi við Bíó Paradís og skipulögð af sendiráði Frakklands á Íslandi, Alliance Francaise de Reykjavík, Institut Francais, Sambíóunum Akureyri og Akureyrarbæ.