Framkvæmdum í Listagilinu að ljúka í bili

Framkvæmdum við endurbætur á gönguleiðum í Listagilinu er að ljúka í bili og er því gilið orðið opið að fullu fyrir umferð. Við viljum koma fram þökkum fyrir tillitsemina og skilninginn meðan á þessum framkvæmdum stóð.

Búið er að leggja nýtt malbik niður Listagilið að Drottningarbraut. Einnig hefur verið lögð ný hellulögn frá torginu fyrir framan hótel KEA að horni Kaupvangsstræti 23 og frá bílastæðinu þar fyrir ofan og upp að gatnamótum Eyrarlandsvegar. Er þetta liður í því að draga úr umferðarhraða og auka vægi gangandi vegfarenda á svæðinu. Aðgengi að Kaupvangsstræti 19 og 21 hefur verið lagað með bættri aðkomu að inngöngum og snjóbræðsla lögð í gönguleiðina að húsunum við Kaupvangsstræti 19-23.

Sjá einnig frétt frá apríl 2021: Endurnýjun gangstétta og torgs í Listagilinu

Áætlað er að framkvæmdir hefjist aftur í haust og verður þá farið í að endurnýja hellulögnina frá Rub23 og niður fyrir 66° norður, einnig verður torgið fyrir framan Hótel KEA endurgert þar sem lögð verður ný hellulögn og torgið malbikað að hluta.

 

Endurbætur í Listagilinu