Fögnum Listasumri!

Egill Andrason og Eiki Helgason hefja Listasumar á morgun. Ljósmynd: Almar Alfreðsson, 2023.
Egill Andrason og Eiki Helgason hefja Listasumar á morgun. Ljósmynd: Almar Alfreðsson, 2023.

Sumarlistamaður Akureyrar, Egill Andrason, hleypir Listasumri af stokkunum á þaki inngangs Listasafnsins á morgun, miðvikudaginn 7. júní kl. 15, með kraftmiklum tónleikum við hæfi. Fyrr um daginn byrjar fyrsta námskeið hátíðarinnar, útihjólabrettanámskeið með Eika Helga og félögum, á brettasvæðinu við Háskólann.

Listasumar sendur til og með 23. júlí og hverfist fyrstu vikurnar að mestu um listasmiðjur og námskeið fyrir börn og ungmenni og ýmislegt annað spennandi eins og til að mynda uppistand og töfrandi tóna með Sögu Garðars og Snorra Helga í Minjasafninu og tónleikaröðina Mysing.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að huga að skráningu þar sem nú þegar er orðið fullt í nokkrar listasmiðjur og námskeið.

Viðburðadagatal hátíðarinnar er að finna á Listasumar.is og þar eru einnig upplýsingar um hvernig hægt er að skrá sig.

Samstarfsaðilar Listasumars eru Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Gilfélagið, RÖSK, Kaktus, Menningarhúsið Hof, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Ketilkaffi, Braggaparkið, Sumartónleikar í Akureyrarkirkju og Geimstofan.

Hægt verður að fylgjast með uppákomum á Listasumri á samfélagsmiðlum Akureyrarbæjar á Facebook og Instagram. Einnig er mælt með að gestir hátíðarinnar noti myllumerkið #listasumar og jafnvel merki færslur og sögur með @akureyrarbaer.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan