Fjórði metanvagninn tekinn í notkun

Strætisvagnar Akureyrar fengu á dögunum afhentan nýjan strætisvagn sem er sá fjórði í flotanum sem gengur fyrir metangasi.

Kaup á nýjum strætisvagni voru boðin út síðasta vetur og í kjölfar þess samþykkti umhverfis- og mannvirkjaráð tilboð Kletts um kaup á vagninum fyrir rúmar 42 milljónir króna.

Nýi vagninn er kærkomin viðbót við flotann en með tilkomu hans er ljóst að yfir helmingur af eknum kílómetrum strætó og akstursþjónustu sveitarfélagsins eru á metani. Fimm af sex ferlibílum ganga fyrir metani.

Áfram er stefnt að því að endurnýja bílaflotann með umhverfisvænum hætti, ýmist með metani eða rafmagni.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan