Fjárhagsáætlun samþykkt í bæjarstjórn

Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs, kynnti áætlunina í gær.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs, kynnti áætlunina í gær.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár, ásamt þriggja ára áætlun 2021-2023, var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gær. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir jákvæðri afkomu af rekstri A- og B-hluta á næsta ári um 106 milljónir króna samanlagt. 

Bæjarstjórn samþykkti jafnframt óbreytta álagningarprósentu fasteignaskatts, það er 0,33% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis og 1,6% af fasteignamati annars húsnæðis. Einnig samþykkti bæjarstjórn óbreytta útsvarsprósentu, 14,52%, auk breytinga á gjaldskrá sem gerir almennt ráð fyrir 2,5% hækkun á næsta ári. Tekjumörk afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega voru hækkuð um 10%. 

Töluverðar framkvæmdir framundan

Á árinu 2020 er gert ráð fyrir framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins fyrir tæplega 4,4 milljarða króna. Fræðslu- og uppeldismál eru sérstaklega fyrirferðarmikil í framkvæmdayfirliti næsta árs. Gert er samtals ráð fyrir 873 milljónum króna vegna endurbóta á Glerárskóla, byggingar leikskóla við hlið Glerárskóla, undirbúningsvinnu vegna fyrirhugaðra endurbóta á Lundarskóla ásamt smærri framkvæmdum. 

Hjá eignasjóði gatna eru áætlaðar 784 milljónir króna vegna nýbygginga gatna, malbikunar, endurbygginga og viðhalds. 

Ríflega helmingur af kostnaði við framkvæmdir næsta árs fellur undir fyrirtæki í B-hluta. Áætlað er að verja 1,5 milljörðum í framkvæmdir á vegum Norðurorku, það er einkum vegna heita- og kaldavatnskerfis og fráveitu. Gert er ráð fyrir 245 milljónum króna í félagslegar íbúðir og 130 milljónum vegna þjónustukjarna í Klettaborg sem verður tekinn í notkun um mitt næsta ár. Hjá Hafnasamlagi Norðurlands eru áætlaðar 436 milljónir króna í hafnarframkvæmdir. 

Hér má skoða fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar. 

Hér má skoða aðgengilega greinargerð með fjárhagsáætlun.  

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan