Fjarfundur með utanríkisráðherra

Á miðunum við Grímsey. Mynd: Friðþjófur Helgason.
Á miðunum við Grímsey. Mynd: Friðþjófur Helgason.

Akureyrarbær og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) standa fyrir rafrænum fundi um Norðurslóðamál með utanríkisráðherra miðvikudaginn 21. apríl kl. 10-11.

Til umræðu verður mikilvægi Norðurlands á Norðurslóðum í ljósi nýrrar skýrslu Grænlandsnefndar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra þar sem settar eru fram hugmyndir og tillögur um aukið samstarf Grænlands og Íslands á nýjum norðurslóðum. 

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri, Embla Eir Oddsdóttir framkvæmdastjóri Norðurslóðanets Íslands, og Hilda Jana Gísladóttir formaður stjórnar SSNE og bæjarfulltrúi taka á móti sérstökum boðsgesti, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Fyrir fundinn verður undirritaður samningur milli SSNE og Norðurslóðanetsins um að Norðurslóðamiðstöð Íslands verði eitt af áhersluverkefnum SSNE árið 2021. Í verkefninu er horft til þeirrar fjölbreyttu þekkingar og reynslu sem fyrir hendi er á svæðinu, með það fyrir augum að efla samvinnu stofnana, fyrirtækja og sveitarfélaga um norðurslóðatengd málefni.

Fundurinn verður í beinu streymi á YouTube: https://youtu.be/wxUV4onK0ZE.

Viðburðurinn á Facebook.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan