FF Múrbrjótar hljóta styrk frá Lýðheilsusjóði og KSÍ

Nokkrir þátttakenda í
Nokkrir þátttakenda í "FF Múrbrjótar - fótbolti án fordóma" á góðum degi.

Verkefnið "FF Múrbrjótur – Fótbolti án fordóma", sem Búsetusvið Akureyrar stendur að, hefur hlotið tvo myndarlega styrki. Annars vegar kr. 250.000 frá Lýðheilsusjóði og hins vegar styrk frá KSÍ upp 6.000 evrur eða um kr. 750.000. Verkefnið gengur út á bjóða einstaklingum sem takast á við geðræn og félagsleg vandamál upp á fótboltaæfingar eða aðra hreyfingu einu sinni í viku yfir sumartímann. Markmiðið er að auka þátttöku í hollri hreyfingu og efla samfélags- og félagsvitund.

Verkefnið byggir á sjálfboðavinnu starfsmanna búsetusviðs og hefur staðið yfir frá árinu 2015. Aðsókn hefur verið góð og verkefnið hefur notið liðsinnis bæði KA og Þórs.

Vegna mikillar og stöðugrar virkni þeirra sem sækja fótboltaæfingarnar þá hafa þátttakendur ákveðið að stíga skrefið til fulls og stofna formlega Fótboltafélagið Múrbrjóta. Tilgangur félagsins er sá sami og verkefnisins að auka virkni og hreyfingu félagsmanna. Allir velkomnir að taka þátt, aðstandendur, starfsfólk félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu einnig. Markhópurinn er engu að síður fólk sem hefur glímt við eða glímir við geðraskanir eða félagsleg vandamál.

Stofnfundurinn mun fara fram á morgun, þriðjudaginn 1. maí kl 19:30 í húsnæði Grófarinnar að Hafnarstræti 95, 4.hæð.

Styrkirnir tveir fela í sér ánægjulega viðurkenningu á þessu starfi og með þeim verður rekstargrundvöllur nýja félagsins afar góður næstu misserin. Styrkur KSÍ er þannig tilkominn að sambandið fekk á dögunum viðurkenningu og styrk frá Evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA, fyrir háttvísi íslenskra landsliða og félagsliða í keppnum á vegum sambandsins 2016-2017. Fjármunirnir frá UEFA voru nýttir til að styrkja háttvísisverkefni („Fair play") eins og FF-múrbrjótar – fótbolti án fordóma.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan