Eru nagladekk nauðsynleg fyrir þig?

Ýmsar tegundir vetrarhjólbarða eru í boði
Ýmsar tegundir vetrarhjólbarða eru í boði

Á þessum árstíma má búast við því að margir bifreiðaeigendur hugi að því að skipta yfir á vetrardekk. Á Íslandi eru nagladekk almennt bönnuð frá 15. apríl til og með 31. október nema aðstæður gefi tilefni til annars. Akureyrarbær vill hvetja þá sem mögulega geta til þess að velja aðra kosti.

Síðastliðin fimm ár hafa að meðaltali 74% bifreiðaeigenda á Akureyri ekið um á negldum hjólbörðum og hefur notkun aukist verulega undanfarin tvö ár. Á Akureyri mælist svifryk of oft yfir heilsuverndarmörkum og eiga nagladekk sinn þátt í því. Þau valda auk þess hávaða og slíta malbiki margfalt hraðar en önnur dekk, sem hefur í för með sér aukinn viðhaldskostnað.

Á Akureyri, og einkum á hálendisvegum í nágrenninu, getur verið flughált og jafnvel þungfært á veturna og því er mikilvægt að vera á góðum og öruggum dekkjum. Ýmsar tegundir vetrarhjólbarða eru í boði sem hafa mismunandi áhrif á umhverfið. Má þar nefna loftbóludekk, harðkornadekk, harðskeljadekk, heilsársdekk með djúpu mynstri og nagladekk.

Akureyrarbær leggur áherslu á að draga úr svifryki og mengun sem af því stafar, til dæmis með því að bleyta götur, hefja sópun gatna fyrr á vorin og þvo þær í ríkari mæli en áður. Þá er vinnuhópur, með fulltrúum frá Akureyrarbæ, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Vegagerðinni, að störfum við að skipuleggja aðgerðir til að draga úr svifryksmengun. Búast má við aðgerðaáætlun frá hópnum innan tíðar.

Íbúar eru beðnir um að hugleiða og meta fyrir sig hvort nagladekk séu nauðsynleg eða hvort mögulegt sé að velja aðrar tegundir hjólbarða og stuðla þannig að bættum loftgæðum og minni hávaða á Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan