Ertu 16-20 ára? Viltu eignast vini á hinum Norðurlöndunum?

Þátttakendur á vinabæjarmóti í Ålesund í Noregi árið 2019.
Þátttakendur á vinabæjarmóti í Ålesund í Noregi árið 2019.

Norrænt vinabæjamót ungmenna verður haldið í Lahti í Finnlandi dagana 27. júní til 1. júlí 2022. Á mótinu er unnið í spennandi vinnuhópum að lifandi verkefnum en grunnþema mótsins er borgarlist í fjölbreyttum myndum. Ungmenninum á aldrinum 16-20 ára sem búsett eru á Akureyri stendur til boða þátttaka á mótinu

Þátttakendur þurfa að vera tilbúnir til að kynna Akureyri og vera góðir fulltrúar bæjarins, taka virkan þátt í verkefnum og vera tilbúnir að kynnast og tengjast ungu fólki frá hinum vinabæjunum í áfengis- og vímuefnalausu umhverfi. 

Ferðadagar verða 26. júní og 1. júlí. Kostnaður þátttakenda er 25.000 kr. fyrir ferðir til og frá Akureyri og þeir greiða sjálfir fyrir mat á ferðalaginu. Öll þátttaka í mótinu sjálfu, þar með talinn matur og gisting, er þeim að kostnaðarlausu. Gert er ráð fyrir að 17 ungmenni komist að.

Vinabæir Akureyrar sem einnig senda þátttakendur á mótið eru fyrir utan Lahti, Ålesund í Noregi, Randers í Danmörku og Västerås í Svíðþjóð.

Skráning fer fram í þjónustugátt Akureyrarbæjar á www.akureyri.is. Í gátttinni er farið í umsóknir og eyðublað er að finna undir flokknum Menning. Nánari upplýsingar veitir Linda Björk Pálsdóttir, forvarna- og félagsmálaráðgjafi. Netfang lindabjork@akureyri.is og sími 460 1231.

Framlengdur skráningarfrestur er til og með mánudagsins 16. maí 2022.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan