Virðum næði og öryggi annarra

Eftir fundinn um Bíladaga sem haldinn var í Rósenborg. Mynd: Ragnar Hólm.
Eftir fundinn um Bíladaga sem haldinn var í Rósenborg. Mynd: Ragnar Hólm.

Fulltrúar frá Aflinu, Akureyrarstofu, Bílaklúbbi Akureyrar, umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar, lögreglu og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili funduðu í síðustu viku um Bíladaga 2019 sem hefjast á morgun, föstudaginn 14. júní, og lýkur formlega með bílasýningu á þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Mikil áhersla verður lögð á að allir virði siðareglur Bíladaga og tekið verði hart á þeim brotum sem kunna að koma upp, líkt og gert hefur verið síðustu sumur. Þá gildir einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.

Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða sýnileg á stærstu viðburðum og lögreglan fylgist vel með því að allt fari vel fram. Lögreglumenn á vakt verða á bæði merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar koma upp hraðahindrunum víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og óvarlegan akstur sem er að sjálfsögðu bannaður eins og ávallt.

Siðareglur Bíladaga:

  • Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn
  • Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti
  • Við spólum einungis á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar
  • Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir
  • Við berum virðingu fyrir náunganum og tökum höndum saman um að gera Bíladaga frábæra
  • Gestir Bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt

Dagskrá Bíladaga 2019 er að finna hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan