Metnaðarfullt Fab Lab í VMA

Frá heimsókn stjórnar Akureyrarstofu í Fab Lab smiðjuna. Jón Þór Sigurðsson lengst til vinstri.
Frá heimsókn stjórnar Akureyrarstofu í Fab Lab smiðjuna. Jón Þór Sigurðsson lengst til vinstri.

Stjórn Akureyrarstofu heimsótti í síðustu viku Fab Lab smiðjuna svokölluðu sem er til húsa í Verkmenntaskólanum. Jón Þór Sigurðsson verkefnastjóri Fab Lab smiðjunnar og Benedikt Barðason aðstoðarskólameistari VMA tóku á móti stjórninni og kynntu starfsemina.

Stjórn Akureyrarstofu lýsti ánægju með góða kynningu og fagnar því metnaðarfulla starfi sem unnið er á vegum Fab Lab smiðjunnar. Ennfremur eru Akureyringar hvattir til að kynna sér það starf sem þar fer fram.

Fab Lab (Fabrication Laboratory) er smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni.

Opnir tímar eru á þriðjudögum frá kl. 16-19 og fimmtudögum frá kl. 15-19.

Heimasíða Fab Lab á Akureyri.

Heimasíða Fab Lab á Íslandi.

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan