Engar heimsóknir á Öldrunarheimili Akureyrar

Stjórnendur Öldrunarheimila Akureyrar hafa ákveðið að loka dvalar- og hjúkrunarheimilum fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta þar til annað hefur verið tilkynnt. Er þetta gert að höfðu samráði við sóttvarnalækni og landlækni eftir að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir. 

Í þessu felst: 
-Engar heimsóknir
-Engar ferðir íbúa út í bæ
-Íbúar mega vera á ferðinni innan ÖA / Lögmannshlíðar, en mælst er til að halda sig sem mest á sínu heimili
-Starfsfólk borðar mat á sínum heimilum
-Langar neglur, skart og naglalakk er bannað hjá starfsfólki
-Börn starfsmanna eru gestir og gildir því heimsóknarbann um þau

Dagþjálfun verður með óbreyttu sniði en staðan verður endurmetin á morgun, 9. mars. 

Almennt iðju- og félagsstarf (bingó, spil og þess háttar) fellur niður. Iðjuþjálfun á heimilum verður hins vegar óbreytt sem og stoðþjónusta eins og sjúkraþjálfun, hárgreiðsla, fótsnyrting og fleira. 

Eins og áður sagði eru þessar ráðstafanir gerðar í samráði við yfirvöld á þessu sviði til þess vernda viðkvæma íbúa fyrir COVID-19 Kórónaveirunni. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan