Endurnýjun umferðarljósa við Þingvallastræti og Skógarlund

Gatnamótin. Skjáskot af ja.is.
Gatnamótin. Skjáskot af ja.is.

Hafin er vinna við að endurnýja umferðarljósin við gatnamót Þingvallastrætis og Skógarlundar.

Skipt verður um öll ljós, bæði fyrir akandi og gangandi vegfarendur, og settar LED perur. Þá verður skipt um hnappa og stjórntölva endurnýjuð.

Meðan á vinnunni stendur getur slokknað á umferðarljósunum annað slagið en reynt verður eftir fremsta megni að hafa þau í gangi eins og hægt er.

Skynjarar í götunni verða sömuleiðis yfirfarnir og þeim mögulega skipt út. Stefnt er að því að lagfæra ljósastýringu sem hefur því miður ekki virkað sem skyldi á þessum gatnamótum.

Markmiðið er að ljúka verkinu í þessari viku en það gæti þó ráðist af veðri. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar framkvæmdir kunna að valda. Þær eru að sjálfsögðu liður í að bæta umferðaröryggi en undanfarið hefur verið lögð mikil áhersla á að endurnýja og nútímavæða umferðarljós í bænum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan