Eiríkur Björn ráðinn bæjarstjóri

EirikurBjornMeirihluti bæjarstjórnar Akureyrar hefur ákveðið að ráða Eirík Björn Björgvinsson sem bæjarstjóra á Akureyri til næstu fjögurra ára. Gengið verður frá formlegum ráðningarsamningi síðar í þessum mánuði og innhald hans kynnt í framhaldi af því. Eiríkur Björn mun hefja störf þann 15. ágúst nk.

Alls sóttu 64 um starf bæjarstjóra á Akureyri en 11 drógu umsókn sína til baka þegar ljóst var að nöfn umsækjenda yrðu birt. Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu. Fyrirtækið valdi 20 einstaklinga úr hópi 53ja umsækjenda til nánari skoðunar og loks 3 úr þeim hópi sem bæjarstjóraefni. Að auki fékk L-listinn 5 manna óháða ráðgjafarnefnd sér til fulltingis í ráðningarferlinu. Á endanum stóð valið á milli sömu þriggja umsækjenda og Capacent mælti með og var Eiríkur Björn valinn úr þeim hópi, sem fyrr segir.

Eiríkur Björn Björgvinsson fæddist í Reykjavík 6. september 1966. Hann varð stúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla árið 1987, lauk íþróttakennaraprófi á grunn- og framhaldsskólastigi frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1990 og diplómu frá Íþróttaháskólanum í Köln árið 1994 auk diplómaprófs í stjórnun frá Kennaraháskóla Íslands árið 2000.

Eiríkur Björn var æskulýðs- og íþróttafulltrúi Egilsstaðabæjar 1994-1996, íþrótta- og tómstundafulltrúi Akureyrarbæjar 1996-2002 og bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði 2002-2010. Eiginkona hans er Alma Jóhanna Árnadóttir, fædd 29. janúar 1969 á Húsavík. Hún er grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri. Þau eiga þrjá syni: Árna Björn, 13 ára; Birni Eiðar, 2 ára og Hákon Bjarnar, 6 mánaða.

Bæjarráð Akureyrar mun fjalla um ráðningu nýs bæjarstjóra og staðfesta hana formlega.

Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, segist mjög ánægður með þessa niðurstöðu. ?Ég tel að við höfum ráðið mjög hæfan mann til að gegna bæjarstjórastarfinu næstu fjögur árin og hann kemur úr stórum hópi mjög frambærilegra umsækjenda. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem sóttu um starfið. Jafnframt óska ég Akureyringum til hamingju með nýja bæjarstjórann og býð Eirík Björn og fjölskyldu velkomin í bæinn aftur,? segir hann.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan