Ein með öllu á Akureyri

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu verður haldin á Akureyri um verslunarmannahelgina. Frá fimmtudegi til sunnudags er boðið upp á þéttskipaða dagskrá.

Sparitónleikar verða á Leikhúsflötinni á sunnudagskvöld og þar koma fram Jónas Sig, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, KA-AKÁ, Stefán Elí, Flammeus, Anton Líni, Gréta Salóme og fleiri.

Sérstök krakkadagskrá verður í miðbænum á laugardag, hátíðartónleikar með ýmsum flytjendum á Ráðhústorgi á föstudags- og laugardagskvöld, markaðsstemning á Ráðhústorgi allan sunnudaginn, Kirkjutröppuhlaupið verður á sínum stað sem og Mömmur og muffins í Lystigarðinum og Óskalagatónleikar í Akureyrarkirkju. Þetta er aðeins brot af því sem verður á boðstólum.

Ýmsar upplýsingar og dagskráin er birt á heimasíðunni www.einmedollu.is.

#versloAK

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan