Skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 - Breyting á svæði AT20 í Grímsey

Skipulagsráð Akureyrarbæjar kynnir, í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, skipulagslýsingu vegna breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.
Breytingin felur í sér að athafnasvæði AT20 stækki úr 0,4 ha í 1,4 ha og að innan svæðisins verði heimilt að reisa allt að 6 vindmyllur.

Hægt er að skoða lýsinguna hér.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 9. júní 2021. Athugasemdum er hægt að skila með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram eða skriflega til skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Frekari upplýsingar eru veittar á skipulagssviði Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. 3. hæð.

Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsingar hjá Akureyrarbæ hér.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem eru birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar.

19. maí 2021
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan