Deiliskipulag Miðbæjar, Drottningbrautarreitur – Hafnarstræti 67-69 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagssvæðið nær yfir húsröð vestan götu við Hafnarstræti 67 – 79. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að skilmálum verði breytt og að ekki verði gerð krafa um að nýbyggingar verði steinsteypt hús að öllu leyti heldur verði heimilt að þeir hlutar húsa sem eru ofan 1. hæðar geti verið úr léttbyggðu burðarefni.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð er til sýnis á 1. hæð, í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar, frá 30. janúar til 13. mars 2019, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Tillagan er einnig aðgengileg hér.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 13. mars 2019 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

30. janúar 2019

Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan