Langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar 2021

Mynd: Auðunn Níelsson
Mynd: Auðunn Níelsson

Í samþykkt Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu eru afmörkuð svæði í miðbæ þar sem sölustarfsemi utandyra má fara fram.

Í samræmi við samþykktina er hér með auglýst eftir umsóknum um langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar fyrir árið 2021. Um er að ræða þrjú stæði fyrir söluvagna á tveimur svæðum. Forleiguréttur er í gildi fyrir þessi svæði og hefur umsækjandi sem hefur haft leyfi frá fyrra ári, forgang umfram aðra. Umsækjandi skal vera skuldlaus við Akureyrarbæ og skal hafa virt lögreglusamþykkt Akureyrarbæjar og samþykkt þessa við endurumsókn að öðrum kosti fellur forleigurétturinn niður. Útgefin leyfi gilda í 6 eða í 12 mánuði.

Umsækjendur skulu kynna sér samþykktina og fylgiskjöl á slóðinni akureyri.is/torgsala, og skila inn umsókn í gegnum þjónustugáttina / thjonustugatt.akureyri.isásamt tilskyldum fylgigögnum fyrir 20. janúar 2021.

 

16. desember 2020

Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan