Austursíða 2 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Austursíða 2 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagssvæðið afmarkast af Hörgárbraut, Síðubraut, Austursíðu og lóðum við Frostagötu. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir nýrri inn- og aðkomu að lóðinni Austursíðu 2, fjölgun bílastæða, byggingarreitur aðalbyggingar stækkar og er framlengdur til suðurs og settir eru inn nýjir byggingarreitir fyrir þjónustuhús og hraðhleðslustöðvar.

Hægt er að skoða tillöguna hér.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 21. apríl 2021 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsingar hjá Akureyrarbæ hér
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem eru birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan