Breyting á deiliskipulagi vegna heilsugæslustöðvar

Tillaga að nýju deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir heilsugæslustöð og viðbyggingu við hótelið.…
Tillaga að nýju deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir heilsugæslustöð og viðbyggingu við hótelið.

Bæjarstjórn samþykkti í vikunni að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Tjaldsvæðisreit við Þórunnarstræti vegna nýrrar heilsugæslustöðvar sem á að rísa á svæðinu.

Lagðar voru fram þrjár útfærslur. Sú tillaga sem var samþykkt að auglýsa felur í sér afmörkun lóðar fyrir um 1.700 fm heilsugæslu á norðvesturhluta svæðisins þar sem nú eru bílastæði.

Að auki er gert ráð fyrir stækkun hótellóðar og viðbyggingu við vesturhluta Icelandair hótels. Einnig færist aðkoma frá Þingvallastræti til vesturs, auk þess sem breytingar eru gerðar á afmörkun bílastæða, gangstétta o.fl.

Tillagan verður auglýst formlega á næstu dögum, í samræmi við skipulagslög, og hafa íbúar og aðrir hagsmunaaðilar sex vikur til að gera athugasemdir.

Breytingin er gerð í góðu samráði við Heilbrigðisstofnun Norðurlands, sem annast rekstur heilsugæslustöðvarinnar, og þegar hún hefur öðlast gildi er stefnt að því að bjóða út framkvæmdir.

Hér er hægt að skoða tillöguna. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan