Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, niðurstaða bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 3. september 2019 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna afmörkunar svæðis til efnistöku við Glerárós.
Breytingin felur í sér að afmarkað er svæði fyrir efnistöku við Glerárós. Framkvæmd efnistöku er tilkynningarskyld skv. lið 2.04 í 1. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda nr. 106/2000 með síðari breytingum og háð framkvæmdarleyfi Akureyrarbæjar.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagssviðs, Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.

Sviðsstjóri skipulagssviðs
11. september 2019

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan