Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 – Gisting á íbúðarsvæðum, niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Akureyrar hefur þann 5. maí 2020 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 í samræmi við 2. mrg. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna breytingar á rekstrarskyldri gististarfsemi á íbúðarsvæðum.
Breytingin felur í sér að gerðar eru breytingar á stefnu aðalskipulags Akureyrar 2018-2030 varðandi heimildir fyrir rekstrarskylda gististarfsemi á íbúðarsvæðum.
Tillagan var auglýst frá 4. mars til 15. apríl 2020. Ein athugasemd barst sem leiddi ekki til breytinga á skipulaginu.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagssviðs Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð.

Sviðsstjóri skipulagssviðs
13. maí 2020

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan