Breiðholt – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.

Tillagan gerir m.a. ráð fyrir yfirbyggðum hringgerðum við Breiðholtsveg 6 og Perlugötu 14 í Breiðholtshverfi.

Hægt er að skoða tillöguna hér.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 2. desember 2020 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsingar hjá Akureyrarbæ hér.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem eru birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan