Barnamenningarhátíð verður haldin

Snjóskúlptúrgerð í Hlíðarfjalli á Barnamenningarhátíð fyrir tveimur árum.
Snjóskúlptúrgerð í Hlíðarfjalli á Barnamenningarhátíð fyrir tveimur árum.

Á morgun hefst Barnamenningarhátíð á Akureyri og er þetta í fjórða skiptið sem hátíðin er haldin.

Hertar sóttvarnaaðgerðir setja sinn svip á framkvæmd hátíðarinnar sem þó verður haldin innan þeirra marka sem sett hafa verið um fjöldatakmarkanir.

Rúmlega 50 viðburðir fyrir börn og ungmenni eru fyrirhugaðir á hátíðinni, allt frá listasýningum, snjóskúlptúrgerð og podcastsmiðju til hæfileikakeppni, ratleiks og tónleika í Menningarhúsinu Hofi með Bríeti.

Nokkrum viðburðum fyrstu dagana þarf því miður að fresta vegna sóttvarnareglna og mun hátíðin teygja sig fram í maí af þeim sökum. Áhugasömum er bent á að fylgjast vel með viðburðadagatali hátíðarinnar sem er að finna á barnamenning.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan