Bætum heilsuna og eigum saman virk efri ár

Fjölmennt var á kynningunni sem haldin var í Hofi á sunnudag.
Fjölmennt var á kynningunni sem haldin var í Hofi á sunnudag.

Um 220 manns sóttu kynningu á verkefninu „Virk efri ár“ sem haldin var í Hofi um síðustu helgi og ennþá er auðsótt að skrá sig til leiks. Verkefninu er ætlað að styðja við heilsueflingu eldri íbúa sveitarfélagsins en rannsóknir hafa sýnt að regluleg hreyfing skiptir afar miklu máli þegar kemur að því að bæta eigin heilsu og auka lífsgæði.

Áhugasamir geta haft samband í síma 865 0913 eða með því að senda tölvupóst á netfangið virkefriar@akureyri.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá Héðni Svarfdal verkefnastjóra lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ með því að koma í Teríuna á 2. hæð Íþróttahallarinnar milli kl. 10 og 13 á miðvikudag og fimmtudag.

Í fyrstu lotu sem stendur í 12 vikur verður t.d. í boði blak, styrktaræfingar, borðtennis, göngufótbolti, jóga, leikir, badminton, göngukörfubolti, innanhúss frisbígolf (folf), pílukast, gönguferðir, sundleikfimi og fræðsla. Allar uppástungur og ábendingar um fleiri kosti eru vel þegnar. Þátttakendur eru hvattir til að prófa sem flest og stefna að því að finna að lágmarki þrennt sem höfðar til þeirra. Æfingar hefjast 13. febrúar og er mánaðargjald 4.900 kr.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan