Bæjarstjórn mótmælir harðlega lokun fangelsisins á Akureyri

Mynd: Vikubladid.is.
Mynd: Vikubladid.is.

Bæjarstjórn Akureyrar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Fangelsismálastofnunar að loka fangelsinu á Akureyri án nokkurs samráðs við bæjaryfirvöld eða aðrar sveitarstjórnir á svæðinu. Yfirlýst stefna stjórnvalda hefur verið að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni og því skýtur það skökku við að fangelsismálayfirvöld taki einhliða og án nokkurs fyrirvara ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri og leggja þar með niður 5 störf í bænum. Bæjarstjórn krefst þess að stjórnvöld grípi tafarlaust í taumana og ógildi þessa ákvörðun.

Bent skal á að samlegðaráhrif í starfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra og fangelsisins á Akureyri eru og hafa um áratugaskeið verið afar mikil. Fram til þessa hafa fangaverðir á vegum Fangelsismálastofnunar einnig sinnt föngum sem gista fangageymslur lögreglunnar vegna rannsóknar mála, ölvunar eða af ýmsum öðrum ástæðum. Ef ákvörðun um að loka fangelsinu á Akureyri verður ekki afturkölluð, þurfa frá og með næstu mánaðamótum að jafnaði tveir af fimm lögreglumönnum á vakt að sinna fangavörslu flesta daga ársins. Þessi ákvörðun mun því að óbreyttu kalla á stóraukið fjármagn til löggæslu á Norðurlandi eystra en að öðrum kosti skerðist löggæsla á svæðinu svo um munar. Lögreglan á Akureyri hefur einnig með höndum eftirlit og útkallslöggæslu á Grenivík, Svalbarðseyri, í Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit og sveitum og þjóðvegum þar í kring. Vandséð er hvernig þrír lögreglumenn geta sinnt allri slíkri löggæslu í umdæminu.

Bæjarstjórn Akureyrar telur með öllu ólíðandi að Fangelsismálastofnun geti í trássi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda í byggðamálum og án samráðs við sveitarstjórnir á svæðinu tekið slíka ákvörðun um að flytja 5 störf af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið og þar með sett löggæslu á svo stóru svæði landsins í algjört uppnám.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan