Bæjarstjórn ályktar um fjárlagafrumvarpið og heilbrigðismál á Norðurlandi

Úr Lystigarðinum á Akureyri. Mynd: Kristín Sóley Björnsdóttir.
Úr Lystigarðinum á Akureyri. Mynd: Kristín Sóley Björnsdóttir.

Á fundi sínum í gær samþykkti bæjarstjórn Akureyrar samhljóða ályktun þar sem lýst er yfir miklum vonbrigðum með það fjármagn sem ætlað er til heilbrigðismála á Norðurlandi í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi.

Ályktun bæjarstjórnar er svohljóðandi:

"Bæjarstjórn Akureyrarbæjar lýsir yfir miklum vonbrigðum með það fjármagn sem ætlað er til heilbrigðismála á Norðurlandi í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar er sérstök áhersla lögð á heilbrigðismál og að allir landsmenn óháð búsetu eigi að njóta góðrar þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Það skýtur því skökku við að Sjúkrahúsið á Akureyri skuli aðeins fá 47 milljónir í raunaukningu til reksturs eða um 0,6%, þegar það liggur fyrir að aukin þjónustuþörf hefur verið á bilinu 2-4% árlega undanfarin ár. Þetta þýðir að það vantar allt að 100 milljónir króna í almennan rekstur svo SAk geti veitt íbúum á þjónustusvæði sínu nauðsynlega þjónustu. Í þessu sambandi vill bæjarstjórn benda á að á liðnum árum hafa stjórnendur og starfsfólk SAk sýnt mikið aðhald og ráðdeild í rekstri og því er full ástæða til að taka fullt mark á ábendingum þeirra sem fram hafa komið síðustu daga. Þá leggur bæjarstjórn ríka áherslu á að samhliða uppbyggingu á húsnæði Landspítalans verði hafist handa við byggingu nýrrar legudeildarálmu við SAk.

Það vekur einnig furðu að í frumvarpi til fjárlaga skuli vera komin fram hagræðingarkrafa á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á sama tíma og það liggur fyrir að þjónustuþörfin hefur aukist verulega og framlög eru aukin til heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarstjórn hvetur þingmenn kjördæmisins og ráðherra fjármála og heilbrigðismála til þess að standa fyrir breytingum á fjárlagafrumvarpinu svo snúa megi þessari þróun við sem er í hrópandi mótsögn við stefnu ríkisstjórnarinnar sem birtist í nýsamþykktum sáttmála hennar."

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan