Bæjarstjórinn fékk góða gesti

Börnin í elstu deild leikskólans Kiðagils heimsóttu Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra í dag og lögðu fyrir hana margar forvitnilegar spurningar.

Börnin komu í tveimur hópum, fyrir og eftir hádegi. Tilefni heimsóknarinnar er að þau eru að vinna að verkefni um bæinn sinn, Ráðhúsið og bæjarstjórann. Afraksturinn verður sýndur á Barnamenningarhátíð í apríl en styrkur til að vinna verkefnið fékkst úr Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Spurningar barnanna snerust mikið til um starf bæjarstjórans en líka hvað Ásthildi finnst skemmtilegast að gera utan vinnunnar og almennt um fjölskylduhagi hennar og frítíma. Upp úr spjallinu verður unnið viðtal við Ásthildi og einnig ætla krakkarnir að teikna og lita myndir af henni og Ráðhúsinu.

Sem sjá má á meðfylgjandi myndum þá fór afar vel á með Ásthildi og krökkunum af Kiðagili.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan