Bæjarráð fagnar uppsetningu ILS búnaðar

Fulltrúar Isavia, þau Jón Karl Ólafsson framkvæmdastjóri innanlandsflugvallasviðs og Hjördís Þórhallsdóttir umdæmisstjóri á Norðurlandi, mættu á fund bæjarráðs Akureyrar í gær til að ræða málefni Akureyrarflugvallar.

Ekki hefur gengið sem skyldi fyrir flugvélar á vegum bresku ferðaskrifstofunnar Super Break að lenda á Akureyrarflugvelli það sem af er janúar en fram hefur komið í fréttum að með haustinu verði svokallaður blind­flugs­búnaður (ILS) til taks á Ak­ur­eyr­arflug­velli. Búnaðurinn er liður í því að treysta millilandaflug um völlinn.

Að loknum fundinum með fulltrúum Isavia samþykkti bæjarráð svohljóðandi ályktun:

Bæjarráð Akureyrar fagnar uppsetningu ILS búnaðar sem koma á upp við Akureyrarflugvöll í sumar og lýsir yfir vilja Akureyrarbæjar til samstarfs við framkvæmd uppsetningarinnar.

Þá skorar bæjarráð á ISAVIA og stjórnvöld að ráðast þegar í mótun framtíðarsýnar flugvallarins. Mikilvægt er í því sambandi að rekstrarfyrirkomulag og eignarhald flugvallarins verði endurskoðað þannig að hægt sé að móta framtíðarsýn og uppbyggingu vallarins og lýsir bæjarráð yfir vilja Akureyrarbæjar til að koma að þeirri vinnu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan