Austursíða 2 - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis við Austursíðu

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi athafnasvæðis við Austursíðu.

Skipulagssvæðið afmarkast af lóð Austursíðu 2. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóðinni verði skipt í þrjár lóðir, þ.e. Austursíðu 2, 4 og 6. Nýtingarhlutfall Austursíðu 2 og 4 verður 0,4 en nýtingarhlutfall Austursíðu 2 hækkar úr 0,3 í 0,5.

Þá gerir tillagan ráð fyrir nýrri aðkomu frá Síðubraut þar sem eingöngu hægri beygja verður leyfð inn og út af skipulagssvæðinu.

Deiliskipulagstillöguna má nálgast hér . Einnig má nálgast gögnin hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrar frá 9. nóvember til 23. desember 2022.

Hægt er að skila inn athugasemdum og ábendingum um skipulagstillögurnar á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til og með 23. desember 2022.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan