Ljósmynd af vef Skipulagsstofnunar.
Samtök atvinnurekenda á Akureyri, í samstarfi við Akureyrarbæ og SSNE, standa fyrir rafrænum hádegisfundi fimmtudaginn 11. nóvember kl. 11:45-13:00.
Fjallað verður um hvaða tækifæri felast í aukinni raforku, einkum hverju Hólasandslína 3 breytir fyrir atvinnurekstur og samfélag við Eyjafjörð.
Fulltrúar frá Landsvirkjun og Landsneti flytja stutta fyrirlestra og svo verða málin rædd út frá ýmsum hliðum.
Erindi:
- Þróun afhendingargetu raforku á Norður- og Austurlandi. Gnýr Guðmundsson, yfirmaður greininga og áætlana í raforkukerfinu hjá Landsneti.
- Orkuframboð á Norðurlandi. Úlfar Linnet, forstöðumaður viðskiptaþjónustu hjá Landsvirkjun.
- Tækifæri í nýjum orkuháðum atvinnugreinum. Sigurður Markússon, forstöðumaður nýsköpunar hjá Landsvirkjun.
Fundurinn verður haldinn á Zoom. Hér er hlekkur á fundinn.
Uppfært: Upphaflega stóð til að halda fundinn á Hótel KEA en í ljósi þróunar Covid-19 faraldursins hefur verið ákveðið að halda hann í netheimum.