Auglýst eftir umsóknum í Menningarsjóð Akureyrar 2022

Sumarlistamaður Akureyrar 2021 Birkir Blær Óðinsson spilar á opnunarviðburði Listasumars. Ljósmynd: …
Sumarlistamaður Akureyrar 2021 Birkir Blær Óðinsson spilar á opnunarviðburði Listasumars. Ljósmynd: Bjarki Freyr Brynjólfsson, 2021.

Akureyrarstofa auglýsir eftir umsóknum í Menningarsjóð Akureyrar fyrir árið 2022.

Að þessu sinni er opnað fyrir umsóknir í nóvember en ekki í janúar eins og venjan hefur verið. Umsóknarfrestur er til og með 28. nóvember 2021.

Hægt er að sækja um í fjórum flokkum eftir því sem við á:

  • Samstarfssamningar

Verkefni sem stuðla að fjölbreyttu menningarlífi á Akureyri.
Hægt er að sækja um samstarf til tveggja eða þriggja ára í senn.
Upphæðir samstarfssamninga geta verið á bilinu 100.000-800.000 kr.

  • Verkefnastyrkir

Verkefni sem hafa listrænt og menningarlegt gildi fyrir samfélagið.
Styrkir eru að upphæð 50.000-400.000 kr. Einnig verður úthlutað tveimur styrkjum að upphæð 600.000 kr. til stærri verkefna í tengslum við 160 ára afmæli Akureyrarbæjar (Akureyrarvaka 26.-28. ágúst 2022).

  • Starfslaun listamanna

Umsóknir skulu innihalda greinargóðar og hnitmiðaðar upplýsingar um fyrirhuguð verkefni á starfslaunatímabilinu, listferil og menntun.
Árið 2022 eru veitt starfslaun að upphæð 2.700.000 kr. sem dreifast jafnt yfir 9 mánuði. Öllum með lögheimili á Akureyri er heimilt að sækja um í eigin nafni.

  • Sumarstyrkur ungra listamanna

Úthlutað verður 1-2 styrkjum til ungs og efnilegs listafólks á aldrinum 18-25 ára sem er í framhaldsnámi eða á leið í framhaldsnám í sinni grein. Markmiðið er að viðkomandi geti dregið úr sumarvinnu (júní-ágúst) með námi og þess í stað lagt stund á list sína bæði með æfingum og viðburðum.
Upphæð hvers styrks er 600.000 kr. sem dreifist jafnt yfir mánuðina júní, júlí og ágúst. Á móti styrknum mun viðkomandi koma fram meðal annars á viðburðum á sumarhátíðum bæjarins, Listasumri (1.-24. júlí 2022) og 160 ára afmæli Akureyrarbæjar (Akureyrarvaka 26.-28. ágúst 2022), allt eftir nánara samkomulagi við Akureyrarstofu hverju sinni.

Umsóknarfrestur allra umsókna er til og með 28. nóvember 2021.

Hagnýtar upplýsingar:
Upplýsingar um reglur Menningarsjóðs, Samþykkt um starfslaun listamanna og Menningarstefnu Akureyrar má sjá HÉR.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á www.akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Nánari upplýsingar veitir Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála í netfanginu almara@akureyri.is.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan