Auglýst eftir umsóknum í Listsjóðinn Verðandi

Auglýst er eftir umsóknum í Listsjóðinn Verðandi fyrir listviðburðaröð sem fram fer í Menningarhúsinu Hofi í júní og ágúst 2021 í tilefni af 10 ára afmæli Hofs. Sjóðurinn veitir styrki til kostnaðar vegna afnota af salarkynnum, tæknibúnaði og tækniþjónustu.

Helstu markmið sjóðsins eru að auðvelda ungu listafólki og þeim sem standa utan stofnanna að nýta sér þá fyrirmyndar aðstöðu sem Hof hefur uppá að bjóða, stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum í húsinu og nýta möguleika þess sem best.

Umsækjendur geta bæði verið einstaklingar og hópar. Umsóknarfrestur er til 26. janúar. Nánari upplýsingar á mak.is.

Verðandi er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningafélags Akureyrar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan