Auglýst eftir umsóknum í Afrekssjóð

Skautakonan Aldís Kara Bergsdóttir úr SA var kjörin íþróttakona Akureyrar 2021 og knattspyrnumaðurin…
Skautakonan Aldís Kara Bergsdóttir úr SA var kjörin íþróttakona Akureyrar 2021 og knattspyrnumaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason úr KA var íþróttakarl Akureyrar árið 2021. Kjörinu var lýst á verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar í febrúar. Á myndinni eru Aldís Kara ásamt foreldrum Brynjars Inga sem tóku við verðlaunum fyrir hans hönd.

Auglýst er eftir umsóknum í Afrekssjóður Akureyrarbæjar fyrir árið 2022.

Markmið sjóðsins er m.a. að styrkja akureyrsk afreksíþróttaefni til æfinga og keppni undir merkjum aðildarfélaga ÍBA.

Nánari upplýsingar um Afrekssjóð Akureyrarbæjar er að finna á heimasíðu ÍBA.

Umsóknarfrestur er til og með 11. desember 2022.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan